Veftré Print page English

Virginía


Forseti á fund með Preston Bryant auðlindamálaráðherra Virginíufylkis í Bandaríkjunum sem er í kynnisheimsókn á Íslandi. Rætt var um þá hörmulegu atburði sem urðu í tækniháskólanum í Virginíu og lýsti forseti samúð Íslendinga með fjölskyldum og aðstandendum hinna látnu. Einnig var rætt um ýmis áhugaefni í heimsókn ráðherrans og tækifæri á aukinni samvinnu milli vísindasamfélagsins í Bandaríkjunum og íslenskra háskóla