Veftré Print page English

Kína


Forseti á fund með sendiherra Kína á Íslandi, hr. Wang Xinshi, en hann lætur senn af störfum. Rætt var um þann mikla árangur sem náðst hefur á undanförnum árum í samskiptum Íslands og Kína, aukin tækifæri í Kína varðandi jarðhita og margvíslega samvinnu á sviði vísinda og tækni. Einnig var rætt um heimsleika Special Olympics sem haldnir verða í Sjanghæ í október og þátttöku Íslendinga í þeim.