Veftré Print page English

Leiðtogafundur í Edinborg


Forseti mun síðar í dag eiga fund með Bill Gates, stofnanda og stjórnarformanni Microsoft hugbúnaðarfyrirtækisins. Fundurinn verður í Edinborg þar sem forsetinn sækir leiðtogaráðstefnu sem haldin er í skoska þinginu. Ráðstefnan ber heitið Microsoft Government Leaders Forum og er þar fjallað um áhrif upplýsingatækni á lýðræði og atvinnulíf í Evrópu. Ráðstefnuna sækja forystumenn margra ríkja í Evrópu og áhrifafólk á sviði upplýsingatækni.

Forseti Íslands flytur erindi á ráðstefnunni og tekur þátt í umræðum um þróun lýðræðis. Í erindi sínu fjallar forsetinn meðal annars um breytingar sem orðið hafa á lýðræðisskipan í álfunni og áhrif upplýsingatækni á möguleika einstaklinga til að hafa áhrif, jafnt á heimavelli sem á alþjóðlegum vettvangi. Jafnframt ræðir forsetinn um tækifæri sem smáar þjóðir á borð við Íslendinga geta skapað sér með markvissri nýtingu fjarskipta- og upplýsingatækni. Í erindinu segir forseti að Ísland sé kjörinn vettvangur fyrir Microsoft og önnur öflug hugbúnaðarfyrirtæki til að þróa nýjan hugbúnað og tækni. Ísland sé í fremstu röð varðandi hlutfallslega notkun á tölvum og farsímum og netvæðing komin lengra en í flestum öðrum ríkjum, markaður sé háþróaður og stjórnsýsla gegnsæ. Þessir eiginleikar geri Ísland kjörið til að vera þróunarvettvangur fyrir nýjan hugbúnað.

Erindi forseta á ráðstefnunni nefnist The New Democracy: How Technology Empowers Citizens to be Active, Influential and Global og má nálgast það í heild á vefsetri forsetaembættisins.