Veftré Print page English

Orðuveiting


Forseti sæmir 14 Íslendinga riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu.
Þeir eru:

1. Baltasar Kormákur Baltasarsson, leikstjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til leiklistar og kvikmyndagerðar

2. Bragi Þórðarson, bókaútgefandi, Akranesi, riddarakross fyrir störf að bókaútgáfu og æskulýðsmálum

3. Einar Sigurðsson, fv. landsbókavörður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag á vettvangi upplýsinga- og safnamála

4. Einar Stefánsson, prófessor, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu menntunar og læknavísinda

5. Guðfinna Dóra Ólafsdóttir, kórstjóri, Garðabæ, riddarakross fyrir störf í þágu tónlistar og kóramenningar

6. Guðrún Jónsdóttir, félagsráðgjafi, Selfossi, riddarakross fyrir frumherjastörf í félagsráðgjöf og framlag til réttindabaráttu

7. Helga Steffensen, brúðuleikstjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til leiklistar og barnamenningar

8. Hermann Sigtryggsson, fv. æskulýðs- og íþróttafulltrúi, Akureyri, riddarakross fyrir störf að æskulýðs- og íþróttamálum

9. Kristín Ingólfsdóttir, háskólarektor, Seltjarnarnesi, riddarakross fyrir störf í þágu menntunar og vísinda

10. Margrét Indriðadóttir, fv. fréttastjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir brautryðjendastörf í fjölmiðlun

11. Ólafur Jóhann Ólafsson, rithöfundur og athafnamaður, Bandaríkjunum, riddarakross fyrir ritstörf og framlag til kynningar á íslenskum málefnum

12. Sigurður Einarsson, stjórnarformaður, Bretlandi, riddarakross fyrir forystu í útrás íslenskrar fjármálastarfsemi 

13. Sigurveig Hjaltested, söngkona, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu sönglistar og menningar

14. Trausti Magnússon, fv. skipstjóri, Seyðisfirði, riddarakross fyrir sjósókn og störf í sjávarútvegi




Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson, Baltasar Kormákur Baltarsson, Bragi Þórðarson, Einar Sigurðsson, Einar Stefánsson, Trausti Magnússon, Sigurveig Hjaltested, Helga Steffensen, Margrét Indriðadóttir, Guðrún Jónsdóttir, Hermann Sigtryggsson, Sigurður Einarsson, Guðfinna Dóra Ólafsdóttir, Kristín Ingólfsdóttir og Ólafur Jóhann Ólafsson