Veftré Print page English

Samúðarkveðjur


Forseti Íslands sendi í dag hennar hátign Margréti Danadrottningu eftirfarandi samúðarkveðju:

„Ég votta yðar hátign og dönsku þjóðinni einlæga samúð vegna hins sviplega fráfalls Jan Nordskov Larsen sjóliðsforingja sem drukknaði við björgunarstörf undan ströndum Íslands.

Hugur Íslendinga er með fjölskyldu hans og vinum og við biðjum yðar hátign að flytja þeim einlægar samúðarkveðjur.”