Orkustofnun
Forseti heimsækir
Orkustofnun og kynnir sér starfsemi hennar. Orkumálastjóri og forstjóri
Íslenskra orkurannsókna kynna verkefni og framtíðarhorfur í rannsóknum á vegum stofnana sinna. Forseti skoðar starfsstöðvar Orkustofnunar og Íslenskra orkurannsókna í Orkugarði og kynnist nokkrum verkefnum sem þar eru unnin. Þá á forseti fund með starfsfólki Orkugarðs og tekur þátt í umræðum um orkunýtingu á nýrri öld og hættuna á loftslagsbreytingum