Veftré Print page English

Rússneskir ríkisstjórar heimsækja Ísland


Forseti Íslands mun á morgun, fimmtudaginn 19. október, og föstudaginn 20. október kynna rússneskum ríkisstjórum, sem heimsækja landið, málefni tengd nýtingu jarðhita, fiskveiðum og vinnslu sjávarafurða, félagslegri þjónustu og ferðamálum á Íslandi.

Ríkisstjórarnir eru Kamil Iskhakov, sérlegur fulltrúi Vladimirs Putin forseta Rússlands í austurhéruðum Rússlands, og Roman Abramovich ríkisstjóri í Chukotka í austanverðri Síberíu. Með þeim í för er sendinefnd embættismanna.

Kamil Iskhakov er einn af sjö sérstökum fulltrúum forseta Rússlands og skipaður yfir allmörg héruð í austanverðu Rússlandi. Þessir sérstöku fulltrúar Rússlandsforseta hafa yfirumsjón með efnahagslífi, félagslegum umbótum, atvinnulífi og þróun þessara héraða.

Í austanverðu Rússlandi er að finna umtalsverðan nýtanlegan jarðhita og gjöful fiskimið. Á undanförnum árum hafa ýmis íslensk fyrirtæki unnið að verkefnum á þessum svæðum eða kannað möguleika á þátttöku í atvinnuuppbyggingu þar.

Ríkisstjórarnir munu m.a. heimsækja höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur og orkuverið á Nesjavöllum, verkfræðistofuna Hnit, fiskvinnsluna Vísi, Saltfisksetrið, fiskeldið Stað, skóla og íþróttamannvirki í Grindavík og kynna sér starfsemi Bláa lónsins.