31. júlí 2016
								
								
								
								
								Forseti ræðir við Ríkisútvarpið i
									sérstökum þætti um forsetatið sína. Þátturinn
										á vef RÚV.
							 
							
								
									28. júlí 2016
								
								
								
								
								Forseti býður starfsfólki forsetaembættisins og mökum
									til kveðjukvöldverðar á Bessastöðum.
							 
							
								
									28. júlí 2016
								
								
								
								
								Forseti tekur á móti fulltrúum Rauða krossins sem afhenda
									forseta sérstakt skjal til staðfestingar á þakklæti
									Rauða krossins fyrir samvinnu við forseta og framlag hans til
									margvíslegra starfa Rauða krossins og þeirra málefna sem
									samtökin hafa sett í öndvegi.
							 
							
								
									28. júlí 2016
								
								
								
								
								Forseti býður ráðherrum, forseta Alþingis og forseta
									Hæstaréttar ásamt mökum til hádegisverðar
									á Bessastöðum að loknum ríkisráðsfundi.
							 
							
								
									28. júlí 2016
								
								
								
								
								Forseti stýrir ríkisráðsfundi á Bessastöðum
									þar sem staðfest eru lög og ýmsar stjórnarathafnir.
									Í lok fundarins flutti forseti stutt ávarp þar sem hann
									þakkaði ráðherrum fyrir samstarfið og vék að
									ýmsum málefnum sem einkennt hafa samstarf og samskipti forseta við
									ríkisstjórnir og einstaka ráðherra í 20 ára
									forsetatíð.
							 
							
								
									23. júlí 2016
								
								
								
								
								Á Landsmóti skáta á Úlfljótsvatni veitti
									formaður Alþjóðanefndar skátahreyfingarinnar forseta
									sérstaka heiðursviðurkenningu Alþjóðasambands
									skáta fyrir störf hans í þágu
									skátarhreyfingarinnar og stuðning við íslensku
									skátahreyfinguna. Forseti tók við viðurkenningunni á
									hátíðasvæði landsmótsins.
							 
							
								
									23. júlí 2016
								
								
								
								
								Forseti heimsækir Landsmót skáta að
									Úlfljótsvatni, fer í tjaldbúðir
									skátafélaga frá ýmsum byggðarlögum,
									ræðir við erlenda skáta sem heimsækja mótið og
									situr fund um alþjóðlegt skátamót sem haldið
									verður á Íslandi á næsta ári. Þá
									sæmdi skátahöfðingi forseta heiðursviðurkenningu
									skátahreyfingarinnar úr gulli fyrir stuðning forseta við
									skátahreyfinguna og þátttöku í störfum hennar.
								
							 
							
								
									21. júlí 2016
								
								
								
								
								Erkibiskup grísku rétttrúnaðarkirkjunnarForseti á
									fund með erkibiskup grísku rétttrúnaðarkirkjunnar,
									Cleopas Strongylis, en Ísland er ásamt öðrum
									Norðurlöndum umdæmi erkibiskupsins. Rætt var um stöðu
									kirkjunnar, bæði á Norðurlöndum og á
									heimsvísu, og áhuga patríarkans í Miklagarði
									á baráttunni gegn loftslagsbreytingum og á málefnum
									Norðurslóða. Einnig var rætt um þróun mála
									í Grikklandi. Fundinn sat einnig ræðismaður Grikklands á
									Íslandi Rafn Alexander Sigurðsson.
							 
							
								
									16. júlí 2016
								
								
								
								
								Forseti tekur þátt í hátíðarhöldum
									á Ísafirði í tilefni af 150 ára afmæli
									bæjarins. Að lokinni skrúðgöngu frá Silfurtorgi var
									hátíðarsamkoma í Íþróttahúsinu
									þar sem forseti flutti ræðu. Síðdegis tók forseti
									einnig þátt í öðrum atburðum í tilefni
									afmælisins. Ræða forseta.
							 
							
								
									15. júlí 2016
								
								
								
								
								Forseti tekur þátt í sérstakri athöfn á
									Bessastöðum þar sem ýtt var úr vör átaki
									til að endurheimta votlendi, en átakið tengist framlagi
									Íslands til skuldbindinga í loftslagsmálum sem staðfest var
									í París í fyrra. Undirritað var samkomulag milli
									embættis forseta Íslands annars vegar og umhverfis- og
									auðlindaráðuneytis og Landgræðslu ríkisins hins
									vegar sem felur í sér endurheimt votlendis í
									Músavík og Sauðavík á Bessastaðanesi. Forseti,
									ráðherra og landgræðslustjóri fluttu ávörp
									við athöfnina og mokuðu síðan fyrstu moldinni í
									framræsluskurð neðan við Bessastaðastofu. Fréttatilkynning. Sjá
									einnig frétt
										á vef umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.
							 
							
								
									15. júlí 2016
								
								
								
								
								Forseti sendir forseta Frakklands François Hollande
									samúðarkveðju frá sér og íslensku
									þjóðinni vegna hinnar fólskulegu árásar
									í Nice í Frakklandi í gærkvöldi. Hugur okkar allra
									sé hjá hinum látnu, aðstandendum þeirra og vinum, sem
									og þeim sem nú berjast fyrir lífi sínu á
									sjúkrahúsum. Fórnarlömb þessarar atlögu voru
									saklaust fólk, fjölskyldur og vinir, sem fögnuðu
									þjóðhátíðardegi Frakklands sem tileinkaður
									sé hinum sígildu hugsjónum um frelsi, jafnrétti og
									bræðralag. Það sé brýnna en nokkru sinni fyrr
									að þjóðir heims efli órofa samstöðu um
									samfélag lýðræðis og mannúðar en láti
									ekki árásir af þessum toga raska þeim grunngildum sem
									barátta undanfarinna alda hefur skilað þjóðum heims. Fréttatilkynning.
							 
							
								
									13. júlí 2016
								
								
								
								
								Forseti afhendir Íslensku safnaverðlaunin við
									hátíðlega athöfn á Bessastöðum.
									Verðlaunin hlaut að þessu sinni Byggðasafn Skagfirðinga.